medi Epico ROMs olnbogaspelka
Vörunúmer: R032304-ST-L-HAE
Veldu stærð
Verð
72.313 kr
ROM spelka (0-120° í 10 þrepum) fyrir olnboga sem situr vel og er með möguleika á stöðgun í supination og pronation framhandleggs. Með stuðningi við olnbogann og hreyfitakmörkunum, getur spelkan létta á verkjum sem tengjast hreyfingu.
Allar ábendingar fyrir takmarkaðri hreyfingu olnboga sem og stöðgun í supination og pronation framhandleggs, svo sem:
- Aðgerðir á hliðarliðböndum.
- Meðhöndlun á liðhlaupi olnboga án aðgerðar.
- Aðgerðir á olnbogabrotum.
- Enduruppbygging hliðarliðbanda.
- Aðgerðir vegna slita á sinum tvíhöfða og þríhöfða.
- Meðhöndlun á brotnu höfði sveifar (e. radius) með og án aðgerðar.
- Liðskipti í olnboga.
- Meðhöndlun á brotnum fjærenda upphandleggs með og án aðgerðar.
- Samhliða taugaáverki, svo sem á ölnartauginni (e. ulnar nerve)
- "Compartment syndrome"
Ál, PU svampur og bómull.
Stærðir S og L. Stærð ákvarðast af lengd framhandleggs, sjá stærðarviðmið í töflu.