medi Epico ROMs olnbogaspelka barna
Vörunúmer: R0313K9-ST-S-HAE
Veldu stærð
Verð
55.625 kr
ROM spelka (0-120° í 10 þrepum) fyrir olnboga sem situr vel og er með möguleika á stöðgun í supination og pronation framhandleggs. Með stuðningi við olnbogann og hreyfitakmörkunum, getur spelkan létta á verkjum sem tengjast hreyfingu.
Allar ábendingar fyrir takmarkaðri hreyfingu olnboga sem og stöðgun í supination og pronation framhandleggs, svo sem:
- Aðgerðir á hliðarliðböndum.
- Meðhöndlun á liðhlaupi olnboga án aðgerðar.
- Aðgerðir á olnbogabrotum.
- Enduruppbygging hliðarliðbanda.
- Aðgerðir vegna slita á sinum tvíhöfða og þríhöfða.
- Meðhöndlun á brotnu höfði sveifar (e. radius) með og án aðgerðar.
- Liðskipti í olnboga.
- Meðhöndlun á brotnum fjærenda upphandleggs með og án aðgerðar.
- Vandamál við sáragróanda.
- Húðvandi tengdur opnum sárum.
- Samhliða taugaáverki, svo sem á ölnartauginni (e. ulnar nerve).
- "Compartment syndrome".
Ál, PU svampur og bómull.
Ein stærð sem miðast út frá ákveðinni lengd framhandleggs, sjá stærðarviðmið í töflu.