medi protect.St pro hnéspelka
Vörunúmer: G74063-ST-1
Veldu stærð
Verð
17.990 kr
protect.St pro er mjúk hnéspelka sem varnar gegn því að hnéð yfirréttist og styður það í breiddarsniði (e. frontal plane) með málmstífum í hliðum. Auk þess getur aukin vitund um hnéð fyrir tilstilli snertingarinnar af spelkunni hjálpað við stjórn á því og þannig veitt stuðning.
Allar ábendingar fyrir auknum lífeðlisfræðilegum stuðningi við hnéð eins og:
- Óstöðugleiki í hné.
- Eftir áverka á liðþófa.
- Slitgigt í hné.
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Pólýamíð og elastan.
Stærðir XS til XXL. Stærð ákvarðast af ummáli læris, 15 sm ofan við hnélið, sjá stærðarviðmið á mynd.