Mediroyal Liga X hnéspelka
Vörunúmer: NRX411-ST-L
Veldu stærð
Verð
71.286 kr
NRX Liga X er stöðug og slitsterk hnéspelka með lið sem hægt að er stilla bæði með tilliti til beygju (45°, 60°, 75° og 90°) og réttu (0°, 10°, 20°, 30° og 40°). Aftan á spelkunni er réttubönd sem lítið fer fyrir. Þau liggja svo fram þar sem þau eru stillt. Púði er um hnéskelina til stuðnings og lærhluti spelkunnar er úr efni sem kemur í veg fyrir að spelkan skríði niður legginn við notkun. Til þæginda er efni í hnésbótinni sem loftar vel. Spelkan er fest yfir læri og kálfa með frönskum rennilás.
- Óstöðugleiki í hné vegna áverka á krossbönd, hliðarbönd eða liðþófa.
- Yfirréttuvandamál.
- Óstöðug hnéskel.
- Bólga eða slitgigt.
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Stærðir X-Small til XXX-Large. Stærð ræðst af ummáli um hné, sjá stærðarviðmið á mynd.