allard SELECTION Wrist Rigid úlnliðsspelka með þumalstuðningi Vinstri
Veldu stærð
Selection Wrist Rigid er sérlega þægileg úlnliðsspelka með þumalstuðningi en hefur að öðru leyti sömu eiginleika og mjúka útgáfan (sjá https://www.stod.is/spelkur-og-stodtaeki/hendur/allard-selection-wrist-soft-ulnlidsspelka-vinstri/). Spelkan lokast með frönskum rennilásum sem eru áfastir við reimar og er með stillanlegan þumalstrappa. Spelkan veitir góðan stuðning með plastspöngum lófamegin og bakhandarmegin og ætti að verða fyrir valinu ef stuðning þarf við grunnlið þumals (e. CMC-1). Þannig hentar hún vel til dæmis í ýmsum tilfellum gigtar, eftir mjúkvefjaáverka eða við eitthvað slítandi.
- Bólga.
- Vinnutengt álag.
- Gigtar- eða hrörnunarbreytingar.
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Stærðir X-Small til XX-Large. Stærð ákvarðast af ummáli úlnliðs, sjá stærðarviðmið á mynd.