allard S.O.T. hvíldarspelka XS
Létt og lipur hvíldarspelka fyrir spastíska og lamaða hendi þegar markmiðið er að viðhalda eða auka hreyfingu í hendinni. Hönnunin miðar að stuðningi við þumalfingursbunguna (e. thenar muscles) sem og grunnliði (e. CMC-joints) og hnúaliði fingra (e. MCP-joints) sem er sérstaklega hentugt fyrir þá notendur sem spelkan er hugsuð fyrir. Þrír aukahlutir eru mögulegir með spelkunni sem veita viðbótarstuðning við úlnlið (sjá mynd merkta 28713), aðgreina fingur (sjá mynd merkta 28712) og fingurfleigar í þremur mismunandi stærðum (sjá mynd merkta 28711).
Heilaslag (e. stroke) Meðfædd heilalömun (e. cerebral palsy) Liðagigt Lömun sveifartaugar (e. nervus radialis) Vöðvarýrnun Bjúgur eða áverki á armflækju (e. brachial plexus)
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Mótanlegur álkjarni, umlukinn fóðruðum svampi.
Stærð ákvarðast af breidd handar yfir grunnliði fingra II-V og lengd handar frá úlnlið og að enda löngutangar, sjá stærðarviðmið á mynd.