medi CTS úlnliðsspelka með fingurspöng
Vörunúmer: R11000-ST-0
Veldu stærð
Verð
18.912 kr
CTS er úlnliðsspelka úr bólstruðum álkjarna sem endar frammi í fingrum og kemur þannig í veg fyrir hreyfingu fingra II til V og úlnliðs og getur þannig unnið á verkjum sem tengist slíkri hreyfingu. Þetta getur komið sér vel um nætur.
Hönnun spelkunnar gerir kleift að hreyfa þumal að vild og álspöngin og böndin á henni má stilla þannig að fleiri fingur geta hreyfst á meðan aðrir eru skorðaðir.
Allar ábendingar fyrir stöðgun úlnliðs og fingra II til V á sama tíma eins og:
- Heilkenni úlnliðsganga (e. carpal tunnel syndrome), án aðgerðar eða eftir aðgerð.
- Sinarbólga (e. tendonitis) og sinaslíðursbólga/sinaskeiðabólga (e. tendonitis/tenosynovitis).
- Liðhrörnun/slit í úlnlið.
- Aflögun úlnliðs, miðhandarbeina (e. metacarpal bones) og fingra.
Óstöðug brot í hendi.
Ál og pólýamíð.
Stærðir 0 til III. Stærð ákvarðast af lengd handar, sjá stærðarviðmið í töflu.