Ottobock Lumbo Direxa Women bakbelti
Vörunúmer: 50R51-ST-L
Veldu stærð
Verð
61.910 kr
Lumbo Direxa Women er 24 sm hátt bakbelti fyrir mjóhrygg og sniðið sérstaklega að mitti og getur þannig hentað betur fyrir kvenlíkamann. Það er létt og fyrirferðarlítið, fer vel á húð og lagast vel að líkamanum, þar á meðal með 4 stuðningsstöngum yfir baki auk þess sem aukin vitund um bakið fyrir tilstilli snertingarinnar af beltinu getur hjálpað við stjórn á því og þannig veitt stuðning. Utan á beltinu er tvö stillanleg teygjubönd og því getur fylgt nuddpúði til að örva blóðrás.
- Verkur í mjóbaki.
- Taugarótarkvilli/settaugarbólga frá mjóbaki (e. lumbar radiculopathy/sciatica).
- Vöðvaójafnvægi í lendhrygg.
- Hrörnunarbreytingar í lendhrygg.
- Beinklökkvi (e. osteochondrosis) í lendhrygg.
- "Facet joint syndrome" í lendhrygg.
- Diskútskot á liðbilum L4 til S1.
- Brjósklos á liðbilum L4 til S1.
- Þófanám (e. discectomy) á liðbilum L4 til S1.
- Óþægindi í spjald- og mjaðmarbeinsliðnum (e. SI-joint).
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Stærðir XS til XXL. Stærð ákvarðast af mittismáli, sjá stærðarviðmið á mynd.