medi Lumbamed facet bakbelti
Vörunúmer: K27021-ST-2
Veldu stærð
Verð
42.275 kr
Lumbamed facet er mjóbaksbelti með það að markmiði að veita smáliðum/liðtindaliðum (e. zygapophysial joints/facet joints) mjóbaksins stuðning með þrýstingi og spöngum í baki sem hvoru tveggja draga úr sveigju (e. lordosis) mjóbaksins. Auk þess veitir beltið mótum mjóbaksins og mjaðmagrindarinnar stuðning.
Allar ábendingar fyrir því að draga úr sveigju í mjóbaki (e. lordosis) eins og:
- Slitgigt í smáliðum/liðtindaliðum (e. zygapophysial joints/facet joints) mjóbaksins.
- Brjósklos/brjóskútbungun í mjóbaki.
- Verkur í mjóbaki (e. lumbago).
- Verkur í mjóbaki með settaugarbólgu/þjótaki (e. sciatica).
- Þrengsl í mænugangi í mjóbaki.
- Vanstarfsemi stöðuvöðva í mjóbaki.
- Hryggjarliðsskrið (e. spondylolisthesis).
- Hrygghrörnun (e. spondylosis).
- Sársaukafullt ástand á mótum mjóhryggjar og mjaðmagrindar.
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Pólýamíð, pólýester og elastan.
Stærðir I til VI. Stærð ákvarðast af mittismáli hjá körlum og mjaðmamáli hjá konum, sjá stærðarviðmið í töflu.