Ottobock Lumbo Direxa Stable bakbelti
Lumbo Direxa Stable er 28 sm hátt bakbelti sem styður við skyn og hreyfingu í baki og virkjar vöðvakraftinn í því og veitir því þannig stuðning frá mjóbaki og upp á brjóstbak. Þannig getur beltið dregið úr sveigju í lendhrygg (e. lordosis) og jafnframt létt á verkjum. Beltið er þægilegt og kemur vel við húð og andar vel. Í afturhluta beltisins eru fjórar málmspangir sem má móta og tvær gormafjaðrir sem tryggir góða aðlögun að mismunandi líkömum. Þrjú bönd utan á beltinu gefa kost á því að stilla þrýsting hverju sinni og tryggja þannig allt að mikinn stuðning. Nuddpúði fylgir til þess að hafa undir afturhluta þess til þess að örva blóðrásina.
- Verkur í mjóbaki.
- Þjótak/settaugarbólga í mjóbaki (e. lumbar radiculopathy/sciatica).
- "Ligamentosis" í lendhrygg.
- Vöðvaójafnvægi í lendhrygg.
- Hrörnunarbreytingar í lendhrygg.
- Beinklökkvi (e. osteochondrosis) í lendhrygg.
- "Facet joint syndrome" í lendhrygg.
- Diskútskot á liðbilum L3 til S1.
- Brjósklos á liðbilum L3 til S1.
- Þófanám (e. discectomy) á liðbilum L3 til S1.
- Hryggspenging í mjóhrygg á liðbilum L3 til S1.
- Stöðug brot eftir áverka eða brot vegna beinþynningar á liðbilum L3 til S1.
- Beinþynning í mjóbaki (L3 til S1).
- Óþægindi í spjald- og mjaðmarbeinsliðnum (SI-joint).
Engar þekktar en huga ber að viðkvæmri húð, skynfærum og/eða blóðrás og annarri vökvarás líkamans.
Stærðir XS til XXL. Stærð ákvarðast af mittismáli, sjá stærðarviðmið í töflu.