medi Omomed axlarhlíf
Vörunúmer: K30320-ST-0-HAE
Veldu stærð
Verð
20.025 kr
Stillanleg axlarhlíf sem takmarkar hreyfingu í helstu áttir, bætir stöðu axlarliðarins og hentar vel undir fatnaði. Hlífin veitir viðnám gegn bólgu og vöðvaspennu með þrýstingi auk þess sem aukin vitund um öxlina fyrir tilstilli snertingarinnar af hlífinni getur hjálpað við stjórn á henni og þannig veitt stuðning.
- Brot og/eða aðgerðir á höfði upphandleggsbeins, herðablaði eða axlarskál.
- Liðhlaup í axlarhyrnu- og viðbeinslið (e. AC joint).
- Fremra liðhlaup í öxl og langvinnt hlutaliðhlaup (e. subluxation).
- Einkennagefandi slit í öxl.
- Aðgerðir til að auka stöðugleika í öxl.
- Enduruppbyggingaraðgerðir á "rotator interval".
- Endurfesting sinar tvíhöfða með akkeri.
- Meðhöndlun á aftara liðhlaupi í öxl með eða án aðgerðar.
- Sjúkdómar eða áverkar á umlykjandi húð, sérstaklega ef sýkingareinkenna er vart (aukinn hiti, bólga eða roði).
- Skert skyn eða skert starfsemi blóðrásar í handleggnum sem um ræðir (t.d. í sumum tilfellum sykursýki).
- Skert starfsemi vessaæða sem og óljósar bólgur í mjúkum vefjum utan notkunarsvæðis hlífarinnar.
Pólýamíð, pólýester og elastan.
Stærðir 0 til IV. Stærð ákvarðast af ummáli upphandleggs, sjá stærðarviðmið á mynd.