Pilot-24 lite hleðslubatterí fyrir kæfisvefnsvél
Pilot‑24 Lite 95Wh hleðslubatterí fyrir kæfisvefnsvélar - tilvalið í ferðalög og sem vara hleðsla heima.
Létt og ferðavænt hleðslubatterí sem má taka með í handfarangur í flug.
Rafhlaðan er <100Wh og uppfyllir alþjóðlegar reglur um flutning lithium rafhlaðna.
Batteríið virkar einnig sem hleðslubanki og getur hlaðið síma, úr og önnur USB‑tæki á ferðinni.
Með batteríinu fylgir hentugur burðarpoki.
Endingartími fer eftir notkun og aðstæðum. Til að ná sem lengstum notkunartíma með AirSense 10 og AirSense 11 er ráðlagt að slökkva á hitabarka og rakatæki.
Áætlaður endingartími rafhlöðu:
ResMed AirMini (12V)
- Þrýstingsstilling 5: allt að ~19–20 klst
- Þrýstingsstilling 10: allt að ~12–13 klst
ResMed AirSense 10 (24V)
- Þrýstingsstilling 5:
- Með raka og hita: ~2–3 klst
- Án raka og hita: allt að ~15–16 klst
- Þrýstingsstilling 10:
- Með raka og hita: ~2 klst
- Án raka og hita: allt að ~11–12 klst
ResMed AirSense 11 (24V)
- Þrýstingsstilling 5:
- Með raka og hita: ~2–3 klst
- Án raka og hita: allt að ~14–16 klst
- Þrýstingsstilling 10:
- Með raka og hita: ~2 klst
- Án raka og hita: allt að ~10–12 klst
Stærð: 19x9x2 cm
Þyngd: 560 gr.
Hleðslutími batterísins:
- Ef notuð er snúran sem fylgir með AirSense 10 vélinni (90W aflgjafi) þá tekur um 2-3 tíma að fullhlaða batteríið
- Ef notuð er snúran sem fylgir með AirMini ferðavélinni (20W aflgjafi) þá tekur um 7-9 tíma að fullhlaða batteríið
- Ef notað er Medistrom bílahleðslutækið þá tekur um 3-4 tíma að fullhlaða batteríið
Eftirfarandi aukahlutir eru til fyrir hleðslubatteríið: