Pilot-24 lite hleðslubatterí fyrir kæfisvefnsvél
Pilot-24 Lite hleðslubatteríið er hægt að nota með AirMini ferðavélinni, AirSense 10 og AirSense 9 frá ResMed. Batteríið er 17x9 cm og 560 gr. Poki utan um batteríið fylgir með. Batteríið má einnig nota sem hleðslubanka fyrir önnur tæki sem hlaðin eru með USB eins og t.d. síma, úr og spjaldtölvur.
Batteríið endist í 8-16 klukkutíma eða 1-2 nætur, fer eftir aðstæðum og hvaða gerð af vél er verið að nota. Ef vélin er notuð með AirSense 10 vélinni þarf að slökkva á hitabarka og rakatæki til að lengja notkunartímann.
Batteríið er hægt að nota á tvennskonar vegu:
- Ferðabatterí
- Backup power supply (tekur við ef ragmagið slær út)
Hleðslutími batterísins:
- Ef notuð er snúran sem fylgir með AirSense 10 vélinni (90W aflgjafi) þá tekur um 2-3 tíma að fullhlaða batteríið
- Ef notuð er snúran sem fylgir með AirMini ferðavélinni (20W aflgjafi) þá tekur um 7-9 tíma að fullhlaða batteríið
- Ef notað er Medistrom bílahleðslutækið þá tekur um 3-4 tíma að fullhlaða batteríið
Leyfilegt er að taka hleðslubatteríið í flug en mikilvægt að hafa það í handfarangri. Einnig er sniðugt að hafa samaband við flugfélag fyrir flug til að athuga hvort batteríið sé ekki örugglega leyfilegt. Alríkisflugmálastofnun (FAA) samþykkir batteríið í flug og tekur það 95 Watt á klukkustund (Wh).
Það eru þrjár snúrur sem fylgja með hleðslubatteríinu
- Snúra til að nota batteríið með AirSense 10 vélinni
- Snúra til að nota batteríið með AirMini vélinni
- Snúra til að hlaða batteríið með AirMini aflgjafanum
Eftirfarandi aukahlutir eru til fyrir hleðslubatteríið:
Tengdar vörur
