Vicair Active O2 6 hjólastólasessa
Sérpöntun
Vicair Active O2 er einstaklega létt sessa sem er hönnuð fyrir virka hjólastólanotendur sem leggja áherslu á hreyfanleika, stöðugleika og góða húðvernd í daglegri notkun. Sessan er með loftfyllt Vicair SmartCell® hólf að aftan og mótaðan svamp að framan og býður þannig upp á bæði þrýstingsdreifingu og stuðning.
Aftari hluti sessunnar veitir góða vernd fyrir setbein og spjaldhrygg, en framhlutinn auðveldar tilfærslur og eykur stjórn og stöðugleika í stólnum. Þetta gerir Vicair Active sérstaklega hentuga fyrir notendur sem færa sig á milli sjálfir og vilja virka, örugga setstöðu.
Sessan andar vel, stjórnar hita og raka. Áklæði og aftarihluta sessunnar má fara á 60°í þvottavél, sem stuðlar að góðu hreinlæti og einföldu viðhaldi. Innbyggður vasi að framan gefur aðgang að smáhlutum eins og síma eða lyklum.
Helstu kostir
Fyrir virka hjólastólanotendur
Góð þrýstingsdreifing og húðvernd
Stöðug setstaða og betri stjórn í hjólastólnum
Auðveldar tilfærslur
Andar vel og góð hita- og rakastjórnun
Áklæði og aftari hluti sessunnar má fara í þvottavél