Fara á efnissvæði

Star StabilAir

Vörunúmer: ESSA4

Sérpöntun

Error
Error
Error
Vinsamlegast þreyttu þrautina

Star StabilAir er loftsessa sem sameinar framúrskarandi þrýstingsdreifingu og aukinn stöðugleika fyrir daglega notkun. Sessan er hönnuð fyrir einstaklinga sem þurfa vernd gegn þrýstingssárum en vilja jafnframt öruggari og stöðugri setstöðu.

Innbyggðir mjúkir svampkjarnar í loftfrumunum hægja á loftflæði innan sessunnar og auka þannig stöðugleika án þess að draga úr þægindum eða þrýstingsdreifingu. Þetta gerir Star StabilAir að frábærum valkosti fyrir notendur sem eru vanir svampsessu en þurfa loftsessu.

Sessan er úr sveigjanlegu Neoprene efni og er latex frí.

Helstu kostir

  • Framúrskarandi þrýstingsdreifing sem aðlagast líkamanum
  • Aukinn stöðugleiki með sérstökum svampkjörnum í loftfrumum
  • Þægileg og örugg setstaða yfir langan tíma
  • Einfalt loftkerfi með einum ventli fyrir auðvelda stillingu
  • Fáanleg í mismunandi stærðum og hæðum til að henta ólíkum þörfum
  • Star StabilAir hentar sérstaklega vel einstaklingum sem þurfa bæði húðvernd og aukinn stuðning við setstöðu í hjólastól. Sessan hjálpar til við að dreifa þrýstingi jafnt og getur stuðlað að auknum setþægindum.

Nánari upplýsingar á heimasíðu framleiðanda: StabilAir 

Tengdar vörur

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu