Handy Wear fótleggjahlíf heil
Hjólastólspokinn hentar einstaklega vel fyrir hjólastólanotendur og notendur rafskutla. Hann er hannaður með þarfir einstaklinga með skerta hreyfifærni í huga og veitir aukin þægindi og vernd gegn kulda og veðri.
Pokinn er sérstaklega hlýr og vel bólstraður, hannaður til að standast kaldar vetraraðstæður og halda notandanum vel heitum.
Hjólastólspokinn er auðveldur í notkun og er lagður beint í hjólastólinn. Hægt er að festa hann við stólinn eða sætið með frönskum rennilásum sem eru á honum.
Framhlið pokans er með rennilás og má opna hana að hluta eða öllu leyti þegar sest er í stólinn, sem auðveldar aðgengi.
ATH. að það er ekki alltaf að marka viðmiðunarstærðartöflu frá framleiðanda, sérstaklega ekki í minnstu stærðunum. Margir taka stærðina fyrir ofan það sem stærðartaflan segir og því er gott að máta tvær stærðir til að vera viss um að fá stærð sem passar.