Batec Electric
Sérpöntun
Batec Electric er rafknúið handhjól á hjólastóla sem er einfalt í notkun og passar á nánast allar tegundir hjólastóla. Hentar vel til daglegra nota hvort sem er í styttri eða lengri ferðir innanbæjar eða utanbæjar.18" hjól og bakkgír. Hagnýtar upplýsingar: Hámarkshraði 10 km/klst Þyngd tækis: 15.9 kg (+ 4 kg rafhlaða, + 5 kg þyngsli sem fest eru á hjólið til að ná betra gripi) Lithium rafhlaða sem dregur 30-35 km á hleðslu við kjöraðstæður Hleðsla rafhlöðu tekur 4 klst Við hönnunina á hjólinu var mikið hugsað um að hafa alla virkni handhjólsins einfalda og hagnýta.Það þekkja það allir að hlutir sem erfitt eða tímafrekt er að nota eiga það til að standa ónotaðir og rykfalla.Því er einfalt að hjóla t.d á veitingahús, í heimsókn til vina, smella handhjólinu af og nota hjólastólinn innandyra.