Leckey Squiggles+
Vörunúmer: 1846000
Sérpöntun
Leckey Squiggles+ er standgrind sem hentar börnum sem eru 1-5 ára eða 75-110 cm á hæð. Hægt er að velja hvort notandinn standi upp úr magalegu eða baklegu. Fjölbreyttir stillimöguleikar. Standgrindin er hæðarstillanleg í standandi stöðu til að auðvelda barni að vera í augnhæð við jafnaldra.
Hefur stillanlega mjaðma- og bolstuðninga. Fer upp í 30° fráfærslu í mjöðm hvorum megin. Hnépúðar eru styrktir innanvert og hægt að aðlaga að mislöngum fótleggjum. Stillanleg fótplata og stillanlegt borð eru á standgrindinni.