Hoggi CESA/CESA abdu hjólastóll
Veldu stærð
Sérpöntun
Í samningi við:
Hoggi Cesa er léttur og sterkur fastramma hjólastóll fyrir börn og unglinga. Stóllinn býður upp á fjölbreytta stillimöguleika, þar á meðal stillanlega setdýpt, sethæð og öxul, sem gerir auðvelt að aðlaga hann að þörfum hvers og eins notanda. Hann er með harða setplötu og riflásabak með nylon áklæði en hægt er að fá hallastillanlega bakplötu sem aukahlut. Einnar handar keyrsluhandfang er innifalið í verði. Kömbrun er 3° til 12°. Fjölbreytt úrval aukahluta er í boði, t.d. höfuðpúði, armar og lokaðir drifhringir. Hægt er að fá stólinn í abdu útfærslu sem skapar meira rými fyrir fætur.
Hagnýtar upplýsingar
Litur: Alls konar litir í boði
Árekstrarprófaður: Já
Stærð 1
Setbreidd: 24-30 cm
Setdýpt: 24-36 cm
Eigin þyngd: 12,5 kg, með dekkjum, hliðarhlífum og fótahvílu/m
Hámarksþyngd notanda: 60 kg
Stærð 2
Setbreidd: 26-36 cm
Setdýpt: 26-42 cm
Eigin þyngd: 13 kg, með dekkjum, hliðarhlífum og fótahvílu/m
Hámarksþyngd notanda: 80 kg
Stærð 3
Setbreidd: 30-44 cm
Setdýpt: 32-48 cm
Eigin þyngd: 13,5 kg, með dekkjum, hliðarhlífum og fótahvílu/m
Hámarksþyngd notanda: 100 kg