
Mæling vegna þrýstingsfatnaðar
Stoð er söluaðili þrýstingsfatnaðar frá þýska heilbrigðisfyrirtækinu MEDI. Þrýstingsfatnaður er notaður í læknisfræðilegum tilgangi til að draga úr bjúg og verkjum vegna sogæðavanda, fitubjúgs eða til meðhöndlunar æðahnúta. Í boði eru hnésokkar, lærasokkar, sokkabuxur, ermar og hanskar.
Starfsmenn Stoðar, sem hafa fengið sérþjálfun frá MEDI, mæla fyrir stærðum og veita ráðleggingar varðandi val og notkun þrýstingsfatnaðar.
Greiðsluþáttaka Sjúkratrygginga Íslands
Ekki er nauðsynlegt að vera með ávísun frá lækni ef einstaklingur hyggst greiða sokka eða fatnað sjálfur. Ef hins vegar ætlunin er að nýta sér greiðsluþáttöku Sjúkratrygginga er nauðsynlegt er að fá lækni eða sjúkraþjálfara til að skrifa vottorð fyrir þrýstingsbúnaði.
Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í niðurgreiðslu á þrýstingssokkum/þrýstingsbúnaði vegna bruna og langvinnra alvarlegra bláæða/sogæðavandamála eða langvarandi og mikillar bjúgsöfnunar vegna lömunar. Að jafnaði eru samþykkt 3 pör af þrýstingssokkum og 2 stk af þrýstingsermum/þrýstingshönskum á 12 mánaða tímabili.
Læknir eða annar heilbrigðistarfsmaður sem ávísar þrýstingsmeðferð getur sótt um niðurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands. Stoð getur sótt um endurnýjun á umsókn.
Þrýstingssokkar
Ýmis þrýstingsfatnaður er í boði hjá Stoð, en algengastir eru þrýstingssokkarnir. Stoð býður vandaða þrepaskipta þrýstingssokka frá þýska fyrirtækinu Medi. Þrýstingssokkar örva flæði í bláæðum og sogæðakerfi fótleggja og draga úr bjúgmyndun, þreytu og þyngslatilfinningu. Þeir eru fáanlegir í þrýstingsflokkum frá I til IV með stigvaxandi þrýstingi.
Þrýstingssokkar eru notaðir við meðferð á bjúg af öllum toga, þ.m.t. sogæðabjúg og fitubjúg, sem og bjúg á meðgöngu. Þeir eru líka notaðir við meðferð á æðahnútum og öðrum bláæðasjúkdómum, sem og eftir æðahnútaaðgerðir. Þeir henta líka sem meðferð við bláæðasárum og eftir blóðtappa í fótleggjum og gagnast gegn bólgum eftir aðgerðir, brot eða tognanir.
Þrýstingssokkar eru líka notaðir sem fyrirbyggjandi meðferð við bláæðavandamálum, blóðtöppum og bjúg.
Sokkamæling
Réttustu niðurstöður sokkamælingar fást ef mál eru tekin snemma dags, þar sem fætur og fótleggir þrútna oft yfir daginn. Þess vegna bjóðum við upp á tíma í sokkamælingu fyrri hluta dags. Ef þú kemst ekki til okkar fyrir hádegi er einnig hægt að mæla sig sjálfur. Hafðu samband við okkur og við leiðbeinum þér í gegnum síma eða tölvupóst.
Gagnlegir hlekkir
Sérþjálfaðir starfsmenn Stoðar í mælingum og ráðgjöf vegna þrýstingsfatnaðar
Pála Rún Pálsdóttir hefur hlotið sértæka þjálfun hjá MEDI varðandi mælingar.
Eygló Hallgrímsdóttir er menntaður sjúkraliði og hefur hlotið sértæka þjálfun hjá MEDI varðandi mælingar.