
Spelkuráðgjöf
Stoð býður fjölbreytt úrval af tilbúnum spelkum og hlífum sem veita stuðning, vernd og auka hreyfigetu. Í boði eru spelkur og hlífar fyrir útlimi, mjaðmir, bak og háls, sem og meðgöngu- og kviðslitsbelti. Vörurnar henta ýmist til endurhæfingar og/eða daglegrar notkunar, hvort sem um er að ræða meiðsli, stoðkerfisvandamál eða fyrirbyggjandi stuðning.
Starfsmenn verslunar veita almenna ráðgjöf, en einnig er hægt að bóka tíma hjá sjúkraþjálfara sem veitir sérhæfða ráðgjöf varðandi tilbúnar spelkur og hlífar og aðstoðar við val á hentugustu lausninni fyrir þínar þarfir.
Gísli Vilhjálmur Konráðsson er með BSc gráðu í sjúkraþjálfun frá Háskóla Íslands. Hann hefur starfað um árabil við endurhæfingu á bráða- og endurhæfingardeildum, einkum með bæklunar- og taugasjúklingum.
Skilmálar
Mæti fólk í bókaðan tíma í ráðgjöf á spelku/hlíf kostar tíminn 2900 kr. Sé vara valin í tímanum, hvort sem muni verða sótt um hana til SÍ eða hún greidd, fellur þetta gjald niður og verður ekki rukkað.
Forfallagjald er rukkað ef ekki er mætt í bókaðan tíma án þess að láta vita fyrir kl. 9:15 samdægurs.
Ef samþykki Sjúkratrygginga liggur ekki fyrir við afhendingu vöru ber viðskiptavini að greiða fyrir vöruna. Stoð endurgreiðir ekki vörur sem voru greiddar ef samþykki berst eftir vöru afhendingu. Viðskiptavinur þarf sjálfur að óska eftir endurgreiðslu frá SÍ. Stoð tekur enga ábyrgð á að SÍ samþykki að endurgreiða vöruna.