Fara á efnissvæði
Cross 6 Image1 800X500

Ráðgjöf um val á hjálpartæki

Stoð býður fjölbreytt og vandað úrval hjálpar- og stuðningstækja sem aðstoða fólk við athafnir daglegs lífs, t.d. hjólastóla, sjúkrarúm, barnakerrur, lyftara og margt fleira. Stór hluti úrvalsins er til sýnis í verslun og sýningarsal að Draghálsi 14-16 og tökum við vel á móti notendum sem og aðstandendum og fagaðilum.

Fyrir sérhæfðari hjálpartæki er gott að bóka tíma hjá sérfræðingi, sem veitir faglega ráðgjöf, hvort sem um ræðir val á tæki eða aðstoð við stillingar. Þegar um einfaldari tæki er að ræða veitir starfsfólk verslunar almenna ráðgjöf og aðstoðar við að finna lausnir sem henta hverjum og einum best.

Bóka tíma í hjálpartækjaráðgjöf

Hjólastólar

Stoð er leiðandi í sölu og ráðgjöf varðandi hjólastóla; bæði fastramma, krossramma, sem og rafmagnshjólastóla. Þá sérhæfir Stoð sig í margvíslegum aukabúnaði á hjólastóla svo sem aflbúnaði, sessum og sérmótum.

Sérfræðingar Stoðar veita ráðgjöf varðandi hjólastóla og fylgihluti, mælt er með því að bóka tíma.  

Göngugrindur og rafskutlur

Göngugrindur og rafskutlur geta skipt sköpum í daglegu lífi einstaklinga. Mikilvægt er að velja tegund og útfærslu sem hentar hverjum og einum og sjá til þess að stillingar séu réttar. 

Sjúkrarúm, dýnur og fólkslyftur

Rétt val á sjúkrarúmum og dýnum er mikilvægt fyrir velferð einstaklinga. Stoð býður upp á gott úrval rúma og dýna sem henta bæði á heimilum og sjúkrastofnunum. Þá eru einnig í boði segllyftarar, standlyftarar og ýmiskonar stuðningsstangir sem geta reynst nauðsynlegar við að komast í og úr rúmi.  

Starfsfólk verslunar býður enn fremur upp á ráðgjöf varðandi snúningslök, stuðningspúða og fleira sem tengist svefni og hvíld.

Bað- og salernishjálpartæki

Stoð býður mikil úrval af hjálpartækjum fyrir baðherbergi. Má þar nefna sturtukolla og sturtustóla, salernisupphækkanir og salernisstóla, sem og margvísleg önnur stuðningstæki, svo sem handföng, tröppur og fleira. Starfsmenn verslunar veita ráðgjöf um bað- og salernishjálpartæki og ekki er þörf á að bóka tíma.

Vinnustólar og standgrindur

Stoð býður gott úrval vinnustóla og standgrinda bæði fyrir fullorðna og börn.

Hjálpartæki fyrir börn

Stoð er leiðandi í sölu og ráðgjöf hjálpartækja fyrir börn. Má þar nefna kerrur, hjólastóla, rúm, stóla, standgrindur og margvíslega gönguhjálp. 

 

Bóka tíma í hjálpartækjaráðgjöf
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu