Fara á efnissvæði
Ottobock gervilimur

Ráðgjöf stoðtækjafræðings

Í sumum tilvikum getur þurft að sérsmíða spelkur, gerviútlimi eða önnur stoðtæki sem krefst aðkomu stoðtækjafræðinga. Sérsmíði er oft nauðsynleg þegar hefðbundin stoðtæki uppfylla ekki þarfir fólks, til dæmis vegna sjaldgæfra sjúkdóma, flókinna líkamlegra vandamála eða kröfu um aukinn stuðning og virkni.

Ferlið við sérsmíði stoðtækja hefst með nákvæmri greiningu á þörfum notandans. Hún getur falið í sér ítarlega líkamsmælingu, stafræna skönnun og prófanir á mismunandi efnum og hönnunarlausnum. Mikil áhersla er lögð á þægindi, endingu og virkni, en einnig að tækið falli vel að daglegu lífi einstaklingsins og auðveldi honum hreyfingu og þátttöku í athöfnum daglegs lífs.

Stoð hefur á að skipa framúrskarandi teymi stoðtækjafræðinga, sumir hverjir með áratuga starfsreynslu.

Hafa þarf samband við þjónustuver Stoðar í síma 565-2885 til að bóka tíma hjá stoðtækjafræðingi.

Þórir Jónsson

Þórir Jónsson er stoðtækjafræðingur frá Jönköping University í Svíþjóð. Þórir hefur starfað hjá Stoð frá árinu 1995 og þjónustað fjölmarga einstaklinga og stofnanir. Hann hefur mikla sérhæfingu er varðar spelkur, og önnur stoðtæki. 

Elva Dröfn Sigurjónsdóttir

Elva Dröfn Sigurjónsdóttir er stoðtækjafræðingur frá Jönköping University í Svíþjóð. Elva hefur starfað hjá Stoð frá árinu 2018. Hún hefur víðtæka reynslu í fjölþættum stoðtækjum.

Kjartan Gunnsteinsson

Kjartan Gunnsteinsson er stoðtækjafræðingur frá University of Salford í Bretlandi og hefur lokið MPH gráðu í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands. Hann starfaði um áratuga skeið hjá Össuri við vöruþróun, rannsóknir og kennslu, sem og við þjónustu við notendur á spelkum og gerviútlimum. Hann starfaði sem sérfræðingur hjá Sjúkratryggingum Íslands áður en hann gekk til liðs við Stoð haustið 2024.

Elín Kolfinna Árnadóttir

Elín Kolfinna Árnadóttir lýkur námi í stoðtækjafræði frá Jönköping University í Svíþjóð vorið 2025. Hún hefur starfað hjá Stoð frá árinu 2023. 

Sarah Légrádi Skov Munk

Sarah Légrádi Skov Munk lýkur námi í stoðtækjafræði frá Jönköping University í Svíþjóð vorið 2025. Hún hefur starfað hjá Stoð frá árinu 2024.

 

Bóka tíma
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu