
Göngugreining
Stoð hefur áralanga reynslu af göngugreiningum bæði fyrir fullorðna og börn. Áhersla er lögð á vandaða greiningu og faglega ráðgjöf sérfræðinga.
Íþróttafræðingur framkvæmir skoðun og göngugreiningu með nýjustu tækni á því sviði. Göngugreining getur gefið mikilvægar upplýsingar um hverskonar skófatnaður hentar best og í mörgum tilvikum er hægt að lagfæra göngulag eða draga úr þreytu eða verkjum með innleggjum. Starfsfólk Stoðar veitir faglega ráðgjöf og fræðslu til að finna góða lausn við þinum vanda og til áframhaldandi bættrar heilsu.
Framkvæmd göngugreiningar
Göngugreining tekur 20-30 mínútur.
Notað er göngubretti með innbyggðum þrýstingsnemum sem tengjast tölvukerfi sem skilar nákvæmum upplýsingum um göngulag. Fætur eru skoðaðir og lengdarmældir ef þurfa þykir. Stöðugleiki og jafnvægi eru metin, einnig hvernig álagið kemur á fæturna. Skoðað er hvort tábergssig sé til staðar og staða iljaboga og mjaðmagrindar skoðuð. Myndbandsupptaka sýnir stöðu á fótum og hnjám við göngu og þær upplýsingar eru vistaðar í gagnagrunni
Ef óskað er eftir getur viðskiptavinur fengið útprentun með nákvæmum upplýsingum um göngulag og niðurstöður göngugreiningar
Það getur borgað sig að koma í göngugreiningu ef stoðkerfisvandamál eru til staðar eða til að koma í veg fyrir þau
Göngugreining getur verið lausn við eftirtöldum vandamálum:
- Þreytuverkir og pirringur í fótum
- Verkir í hnjám
- Sársauki eða eymsli í hælum
- Beinhimnubólga
- Óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum
- Verkir í tábergi og/eða iljum
- Hásinavandamál
- Óþægindi í ökklum
- Þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum
Göngugreining barna
Göngugreining er gjarnan gerð ef börn eða unglingar kvarta yfir þreytu eða verkjum í fótum eða eiga í erfiðleikum með gang. Til að geta nýtt sér göngugreiningu þurfa börn að vera orðin tveggja ára.
Lengdarmæling
Stoð býður enn fremur upp á lengdarmælingu ef grunur er um mislengd á fótleggjum. Slík mæling getur hentað vel fyrir þá sem hafa verið í liðskiptum og þurfa upphækkun. Athugið að lengdarmæling er innifalin ef göngugreining er bókuð, en einnig er hægt að bóka hana sér án göngugreiningar. Það getur hentað t.d. fyrir þá sem hafa verið í liðskiptum og þurfa upphækkun.
Sérfræðingar Stoðar í göngugreiningu og ráðgjöf um skóbúnað
Katrín Sara Reyes er íþróttafræðingur að mennt og hefur áralanga reynslu af göngugreiningum og ráðgjöf þeim tengdum.
Birgitta Hallgrímsdóttir er með BSc gráðu í íþróttafræði frá HR. Hún hefur sinnt margvíslegum störfum innan heilbrigðisgeirans.
Inga Dóra Magnúsdóttir er skósmíðameistari með áratuga reynslu af sérsmíði og breytingum á bæklunarskóm, sem og vinnu við fótavandamál og aflaganir.
Skilmálar
- Göngugreining og innlegg skulu greidd af viðskiptavini þegar viðskiptavinur mætir í göngugreiningu. Hægt er að fá greiðsluseðil í heimabanka sé óskað eftir því.
- Forfallagjald er rukkað ef ekki er mætt í bókaðan tíma án þess að láta vita fyrir kl. 9.15 samdægurs.
- Endurkoma í göngugreiningu innan 3 mánaða frá greiningu er innifalin.
- Innan 6 mánaða frá göngugreiningu er breyting á innleggjum innifalin.
- Smiður/greinandi áskilur sér rétt meta hvort hægt sé að laga innlegg eða hvort þurfi að endurnýja.
Verðskrá
Göngugreining
Fyrir fullorðna: 11.900 kr.
Fyrir börn yngri en 18 ára: 9.490 kr.
Séraðlöguð innlegg
Fyrir fullorðna: 22.990 kr.
Fyrir börn: 18.990 kr.
20% afsláttur er veittur af aukapari ef keypt eru fleiri en eitt par í einu