Fara á efnissvæði
Skólausnir

Ráðgjöf um bæklunarskó og innlegg

Stoð hefur áratuga reynslu í mælingum, ráðgjöf, smíði og breytingum á sérgerðum bæklunarskóm og sérsmíðuðum innleggjum. Við leggjum metnað í að bjóða upp á hágæða lausnir fyrir einstaklinga sem þurfa sérsmíðaðar skólausnir, hvort sem það er vegna meðfæddra skekkja, áunninna einkenna eða annarra stoðkerfisvandamála sem krefjast sérhæfðs stuðnings.

Sérfræðingar sjá um nákvæmar mælingar og mat á þörfum hvers og eins, en í kjölfarið eru viðeigandi skólausnir valdar. Þekking og aðstaða er til staðar til að gera breytingar og aðlaganir á skóm og innleggjum og bjóðum við upp á reglulega eftirfylgni með ástandi fóta. Með þessu tryggjum við að hver einstaklingur fái ekki aðeins rétta lausn í upphafi heldur einnig áframhaldandi stuðning og aðlögun eftir þörfum.

 

Bóka tíma
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu