Almennar spurningar
Verslunin er opin frá 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum. Verkstæðið og vörumóttakan eru opin 9-16 alla virka daga. Lokað er um helgar.
Já, Stoð er með alla starfsemi á sama stað, að Draghálsi 14-16.
Já, það er sjálfsagt. Verslunin er öllum opin.
Við bjóðum upp á göngugreiningu, sokkamælingu, ráðgjöf við stillingu eða val á hjálpartækjum og stoðtækjum, viðgerðir og margt fleira. Hægt er að bóka tíma á netinu: https://bokanir.stod.is eða í síma 565-2885.
Við erum með rúmgóð stæði fyrir fatlaða við innganginn og öll starfsemin okkar er á fyrstu hæð. Ef þú þarft að fá lánaðan hjólastól á meðan þú verslar hjá okkur er það auðsótt mál.
Við gerum okkar besta til að senda pantanir af stað frá okkur næsta virka dag.
Já, það er auðsótt mál. Við sendum vörur með Póstinum og hægt er að fá sent alla leið heim, á pósthús eða póstbox.
Göngugreining og innlegg
Göngugreining getur verið lausn við eftirtöldum vandamálum:
- Þreytuverkir og pirringur í fótum
- Verkir eða eymsli í hnjám, ökklum, tábergi, iljum eða hælum
- Beinhimnubólga
- Óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum
- Hásinavandamál
- Óþægindi í ökklum
- Þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum
Já, þú getur pantað tíma á bokanir.stod.is eða með því að hringja í okkur í síma 565-2885
Það er ekki þörf á því. Ef þú ert með greiningu frá lækni, láttu okkur þó endilega vita.
Nei, við framkvæmum göngugreiningar á Draghálsi 14-16 í Reykjavík.
Já, börn þurfa að vera orðin tveggja ára gömul til að fara í göngugreiningu.
Í flestum tilfellum, já. Ef þú getur gengið hægt á bretti, þar sem hægt er að styðja sig við, geturðu komið í göngugreiningu.
Göngugreiningin tekur 20 mínútur. Inni í greiningarherberginu gengurðu á göngubretti með innbyggðum þrýstinemum sem skila upplýsingum um göngulag þitt á tölvutæku formi. Starfsmaður lengdarmælir einnig fótleggi þína. Nánari upplýsingar um hvernig göngugreining fer fram má finna hér: https://www.stod.is/greining-og-radgjof/gongugreining/
Íþróttafræðingarnir Birgitta Hallgrímsdóttir og Katrín Sara Reyes.
Já, það er alveg sjálfsagt. Ef líka á að göngugreina þann einstakling þarf þó alltaf að bóka tvöfaldan tíma.
Oft er það niðurstaðan en alls ekki alltaf. Stundum kemur í ljós í göngugreiningu að aðrar lausnir henti betur, t.d. almenn innlegg, hækkunarhælar, tábergspúðar eða öðruvísi skór. Starfsmenn Stoðar veita faglega og persónulega ráðgjöf og fræðslu til að finna góða lausn við þínum vanda og til áframhaldandi bættrar heilsu.
Við gerum okkar besta til að biðin sé ekki lengri en 2-3 vikur.
Alltaf skal fjarlægja innleggin sem fyrir eru í skónum áður en nýju innleggjunum er komið fyrir. Ef innleggin eru enn of löng má klippa framan af þeim. Ef það dugar ekki til geturðu komið með innleggin og skóna til okkar og við aðstoðum þig við að koma innleggjunum fyrir.
Í fyrstu skiptin sem nýju innleggin eru notuð gæti óþæginda orðið vart og því má takmarka notkunina til að byrja með. Auka skal notkunina smátt og smátt þangað til að hún verður samfelld. Ef engin óþægindi eru þá er óhætt að vera með þau að vild.
Ef innleggin blotna á að taka þau upp úr skónum og láta þau þorna við stofuhita en ekki setja þau á ofn. Þetta á sérstaklega við þau innlegg sem hafa verið límd saman með einhverjum hætti. Til að þrífa innleggin skal nota rakan klút og strjúka af þeim. Ekki nota vatn og sápu því það getur skemmt innleggin.
Endingartími innleggja fer eftir því hve mikil notkunin er og hvernig hún er. Eitt ár er algengur endingartími en oft geta þau enst lengur. Sumir lengja líf gamalla innleggja með því að setja þau í gúmmískóna eða stígvélin - ef þau eru ekki orðin óþægileg er ekkert að því að nota þau áfram. Ef innleggin hafa reynst vel en gera það ekki lengur er komin tími á endurnýjun. Þú getur pantað aukapar hjá okkur með því að senda póst á stod@stod.is eða hringja í 585-2885. Magnafsláttur er veittur ef keypt eru fleiri en eitt par.
Ef ekki eru liðnir þrír mánuðir frá því þú fékkst innleggin, bókaðu endurkomutíma á https://bokanir.stod.is - hann er ókeypis. Þá finnum við í sameiningu betri lausn.
Langflestir vilja nákvæma skoðun á göngulagi og þá er bókuð göngugreining. Lengdarmæling getur verið nóg ef grunur er um mislengd. Hún hentar vel fyrir þá sem hafa verið í liðskiptum og þurfa upphækkun. En lengdarmæling er líka innifalin í göngugreiningunni.
Þú getur fengið sérgerð innlegg með upphækkun, eða upphækkunarhæl sem settur er undir innleggið sem fyrir er í skónum. Einnig geturðu komið með skóna þína til okkar og við getum hækkað annan skóinn fyrir þig.
Nei, þá skaltu bóka tíma í „Ráðgjöf: skór og innlegg“ á https://bokanir.stod.is eða í s. 565-2885 í staðinn. Sérsmíðuð innlegg eru gerð eftir gifsmóti fótar og eru notuð þegar um miklar skekkjur eða aflaganir á fótum er að ræða og sérgerð innlegg gerð eftir göngugreiningu duga ekki til. Alltaf þarf beiðni frá lækni til að fá sérsmíðuð innlegg.
Ef engin leppur er í skónum fyrir er það nánast ómögulegt. En ef það er leppur í skónum sem hægt er að fjarlægja, er hægt að setja sérgert innlegg í staðinn. Ef þú ætlar að nota sérgerðu innleggin þín í takkaskó, láttu okkur þá vita, því það þarf að slípa þau sérstaklega til.
Sjúkratryggingar taka aldrei þátt í kostnaði við göngugreiningu og ekki við innlegg nema í undantekningartilfellum. Hins vegar er hægt að sækja um styrk vegna þessa hjá sumum stéttarfélögum. Ef þú vilt kanna hvort þitt stéttarfélag veiti styrk vegna göngugreiningar og innleggja skaltu fá kvittun á kennitölu í afgreiðslunni hjá okkur.
Skór og innlegg
Mikilvægt er að velja trausta skó sem veita fótunum góðan stuðning. Gott er að taka efst um hliðarnar á hælnum með annarri höndinni og þrýsta, eða taka um skóinn að framan og aftan og vinda gætilega upp á. Ef hællinn eða skórinn leggst auðveldlega saman er hann ekki að veita nógu góðan stuðning.
Fyrst þarf að ákveða hvort kaupa eigi utanvegaskó eða innanbæjarskó. Innanbæjarskór henta best innandyra og á malbikuðum stígum og gangstéttum. Utanvegaskór eru með grófari sóla og henta betur úti í náttúrunni eða á malarvegum. Passaðu að kaupa ekki skó sem eru of litlir í tána.
Það skiptir höfuðmáli að kaupa ekki of litla skó. Fætur barna vaxa mjög hratt fyrstu árin og þess vegna ætti alltaf að gera ráð fyrir allt að 1-1 1/2 cm fyrir framan lengstu tána. Besta leiðin til að finna réttu stærðina á skóm er að taka innleggið úr, leggja það á gólfið og láta barnið stíga á það. Við ástig þenst fóturinn alltaf eitthvað út (u.þ.b.1/2 cm).
Byltuvarnarsokkar (einnig kallaðir byltusokkar) eru sokkar með stömum sóla, sem veita stöðugleika þegar gengið er skólaust innandyra og minnka líkur á því að fólk renni. Þeir eru með slakri teygju og henta því vel yfir þrýstisokka.
Íþróttasokkarnir frá CEP eru til í ýmsum lengdum og þykktum sem henta fyrir mismunandi íþróttir, við eigum t.d. til sérstaka göngu-, skíða- og hlaupasokka. Þetta eru þrýstingssokkar sem auka blóðflæði og súrefnisupptöku, styðja við sinar og liðbönd, draga úr vöðvaeymslum eftir hreyfingu og líkum á meiðslum, og hraða endurheimt. Þannig hjálpa þeir þér við að ná hámarksárangri í þeirri hreyfingu sem þú stundar.
Við seljum vandaða ferðasokka frá Medi og CEP sem auka blóðflæði og draga úr bjúgmyndun á ferðalögum, t.d. flugferðum. Til að finna réttu stærðina á ferðasokkum þarf að mæla ummál ökkla og lengd fótleggjar frá hnésbót að gólfi. Þú getur mælt þig sjálf/ur eða fengið aðstoð hjá starfsmanni í verslun við að velja rétta stærð.
Við mælum með að þú kaupir ferðasokka ef þú vilt léttari stuðning fyrir heilbrigða fætur, t.d. vegna ferðalaga eða af því að þú stendur mikið. Ef þú glímir hins vegar við einhver viðvarandi vandamál í fótleggjum mælum við með að þú takir sjúkrasokkana í staðinn. Viðvarandi vandamál geta verið t.d. bjúgur, fitubjúgur, bólgur, æðahnútar, bruni, bláæðasár eða önnur bláæðavandamál, sogæðavandamál, eða ef þú hefur fengið blóðtappa í fótlegg.
Bæklunarskór
Sama hvort um er að ræða tilbúna, sérsmíðaða eða hálfsérsmíðaða bæklunarskó þarf læknir alltaf að gefa út vottorð sem sent er inn til Sjúkratrygginga Íslands. Þegar um tilbúna bæklunarskó er að ræða eru fætur mældir, farið yfir úrvalið af skóm og metið hvaða innlegg þarf að fylgja skónum. Síðan eru skórnir pantaðir að utan. Þegar um sérsmíðaða skó er að ræða er oftast tekið mót af fótunum og svo er yfirleitt þörf á að kalla skjólstæðing inn í mátun á meðan ferlinu stendur. Hálfsérsmíðaðir skór verða fyrir valinu þegar að tilbúnir bæklunarskór duga ekki (oft vegna einhverra aflögunar á fótum) en sérsmíðaðir skór eru óþarfir. Sérfræðingur tekur mál og pantar skóna að utan með þeim sérþörfum sem þarf að hafa í huga.
Bókaðu tíma í „Ráðgjöf: skór og innlegg“ á https://bokanir.stod.is eða í s. 565-2885. Þar hittirðu sérfræðing sem aðstoðar þig við að velja skó og/eða mæla fæturna.
Við eigum því miður enga bæklinga til að lána út. Til að velja skó þarf að panta tíma hjá sérfræðingi sem fer í gegnum bæklingana með þér og veitir þér persónulega ráðgjöf um hvaða skór henta þér.
Bæklunarskór eru alltaf sérpöntun að utan og því getur það tekið nokkrar vikur að fá skóna til okkar. Svo þurfum við alltaf að vinna skóna frekar eftir að þeir berast okkur. Við sendum viðskiptavinum okkar skilaboð um leið og skórnir eru tilbúnir.
Já, það er sjálfsagt. Óþarft er að panta tíma, þú getur komið með þá í verslunina til okkar og skilið þá eftir hjá starfsmanni í móttöku. Gættu að því að útskýra nákvæmlega fyrir þeim sem tekur við skónum hvað þurfi að gera, svo allt sé á hreinu.
Sjúkrasokkar
Sjúkrasokkarnir okkar eru frá þýska merkinu Medi. Þeir örva flæði í bláæðum og sogæðakerfi fótleggja og draga úr bjúgmyndun. Þeir eru fáanlegir sem hnésokkar eða lærasokkar. Þrýstingurinn í þeim er mestur neðst niðri og minnkar eftir því sem ofar dregur, sem dregur úr líkum á stasa.
Við erum með staðlaðar stærðir af sokkum, stærðir 1-7. Til að finna hver þeirra hentar þér þarf að mæla ummál ökkla og kálfa og lengd fótleggjar frá hnésbót að gólfi. Ef um lærasokka eða sokkabuxur er að ræða þarf líka að mæla ummál læris efst. Réttasta mælingin fæst á morgnana, sem fyrst eftir að þú ferð á fætur. Þú getur mælt þig sjálf/ur eða fengið aðstoð hjá starfsmanni í verslun við að velja rétta stærð. Einnig getur þú bókað tíma í sokkamælingu hjá sérfræðingi á https://bokanir.stod.is eða í s. 565-2885.
Þá getum við pantað sérsaumaða sokka fyrir þig eftir mælingu sérfræðings. Bókaðu tíma í sokkamælingu hjá okkur á https://bokanir.stod.is eða í s. 565-2885.
Við mælum alltaf með að fólk prófi þrýstingsklassa 1 fyrst, nema læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður hafi sérstaklega mælt með meiri þrýstingi.
Þitt er valið, nema: Við mælum með sokkum með opinni tá ef þú ert með mjög viðkvæmar tær eða mjög langan fót og við mælum með sokkum með lokaðri tá ef þú ert með bjúg á ökkla/rist.
Elegance sokkarnir eru þunnir dömusokkar og Mediven for men eru þunnir herrasokkar. Active sokkarnir eru þykkari og sportlegri herrasokkar. Plus sokkarnir eru ógagnsæir sokkar, örlítið þykkari en Elegance, og henta fyrir bæði karla og konur.
Við reynum að eiga alltaf til herrasokka í svörtu og dömusokka í svörtu og húðlitu. Ef þú vilt sokka í öðrum litum er sjálfsagt að sérpanta þá fyrir þig án nokkurs aukakostnaðar. Það er hægt að sérpanta mikið úrval af litum, en það gæti tekið nokkrar vikur.
Er latex í sjúkrasokkunum? Sokkarnir eru úr elastani og næloni (pólýamíði). Það er ekki latex í þeim.
Til þess að klæða sig í sokkana er best að snúa þeim næstum alveg á rönguna, eða að hælnum, þannig að fóturinn sjálfur á sokknum sé það eina sem er á réttunni. Með sokkinn þannig, teygðu hann vel opinn og stingdu tánni alla leið inn. Togaðu svo í hælinn á sokknum þangað til hann er kominn yfir hælinn á þér. Þegar það er komið skaltu mjaka sokknum rólega upp fótlegginn og slétta svo vel úr honum þannig að það séu engar krumpur. Ef þér finnst erfitt að klæða þig í sokkinn á þennan máta, mælum við með að þú fáir þér sokkaífæru. Sokkaífæra er grind sem heldur sokknum opnum svo þú getir einfaldlega stungið fætinum ofan í sokkinn. Sokkaífærur fást hjá okkur í verslun okkar á Draghálsi.
Athugaðu fyrst hvort þú ert í réttri stærð. Ef langt er liðið frá því að þú varst mæld/ur getur verið að það borgi sig að koma aftur til okkar í sokkamælingu. Hægt er að bóka tíma hér: https://bokanir.stod.is. Ef það leysir ekki vandann getum við sérpantað fyrir þig sokka með sílikon toppbandi. Einnig erum við með til sölu sokkalím, sem borið er á húðina eins og svitalyktareyðir, og heldur sokkunum á sínum stað. Athugaðu einnig að við mikla notkun slaknar teygjan á sokkunum smátt og smátt – kannski er tími til að skipta þeim út.
Já, það er í góðu lagi. Best er að fara í þrýstingssokkana um leið og þú vaknar en mikilvægt er að fara úr þeim áður en þú ferð að sofa.
Best er að þvo þrýstingssokka eftir hverja notkun. Það má þvo þá í höndum með mildri sápu eða í þvottavél við 30-40 gráður á mildu prógrammi án mýkingarefnis. Til að þurrka þá er best er að hengja eða leggja þá til þerris innandyra. Alls ekki setja sokkana í þurrkara eða þurrka þá á ofni eða utandyra í sólskini, þar sem það fer illa með teygjuna í þeim.
Sokkarnir halda fullri þrýstingsvirkni í u.þ.b. 6 mánuði miðað við reglulega notkun. Eftir það fer virknin minnkandi hægt og rólega. Til að sokkarnir endist sem lengst er mikilvægt að hælar og táneglur séu ekki mjög hrjúfar þannig að þær rífi ekki efnið. Við mælum með að nota hanska þegar farið er í sokkana, eða a.m.k. fjarlægja skartgripi og þjala fingurneglur, svo krækist ekki í efnið.
Já, við erum með bæði sokkabuxur og meðgöngusokkabuxur frá Medi. Ermar og annan þrýstingsfatnað er hægt að sérpanta.
Til að Sjúkratryggingar taki þátt í kostnaði þarf að fá lækni eða sjúkraþjálfara til að skrifa vottorð fyrir þrýstingsbúnaði. Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í niðurgreiðslu á þrýstingssokkum og -búnaði vegna bruna og langvinnra alvarlegra bláæða/sogæðavandamála eða langvarandi og mikillar bjúgsöfnunar vegna lömunar. Að jafnaði eru samþykkt 3 pör af þrýstingssokkum og 2 stk af þrýstingsermum/þrýstingshönskum á 12 mánaða tímabili. Athugið að Sjúkratryggingar Íslands greiða aldrei sokkana að fullu, heldur aðeins hluta verðsins.
Þegar þér hefur borist samþykkt á niðurgreiðslu frá Sjúkratryggingum Íslands verðurðu að hafa samband við Stoð til að panta sokkana, það gerist ekki sjálfkrafa.
Spelkur, hlífar og önnur stoðtæki
Við erum með einfaldari/tilbúnar spelkur og hlífar í versluninni og hver sem er getur komið og skoðað þær, mátað og keypt. Ef þú vilt sérfræðiráðgjöf, svo sem varðandi flóknari búnað, geturðu bókað tíma hjá sérfræðingi – veldu „Ráðgjöf við val á spelku eða hlíf“ inni á https://bokanir.stod.is. Athugið að ef þörf er á sérsmíðaðri spelku þarf tíma hjá stoðtækjafræðingi sem hægt er að bóka í síma 565-2885.
Þátttaka Sjúkratrygginga Íslands í kaupum á spelkum er háð skilyrðum úr reglugerð nr. 760/2021 um styrki vegna hjálpartækja. Dæmi um slík skilyrði eru staðfestar slitbreytingar sem valda langvarandi skerðingu á færni, mjög alvarlegar tognanir, mjúkvefjaslit, brot sem valda varanlegum skaða, varanlegur taugaskaða og/eða hrörnunarsjúkdómar svo eitthvað sé nefnt. Læknir eða annar heilbrigðisstarfsmaður þarf að sækja um spelkuna fyrir þig hjá Sjúkratryggingum. Ef samþykkt frá Sjúkratryggingum liggur ekki fyrir megum við því miður ekki afhenda vöruna nema rukka fullt verð. Það gildir líka þegar um endurnýjun heimildar er að ræða.
Já, stoðtækjafræðingur fer reglulega til Akureyrar á Bjarg Endurhæfingu. Hringdu í okkur til að bóka tíma, s. 565-2885.
Það er mismunandi eftir því hvernig hlífin er og í hvaða tilgangi hún er notuð. Einfaldar stuðningshlífar er mikilvægast að vera með í hreyfingu. Ef þú ert óviss um hvernig þú eigir að nota spelkuna þína skaltu leita ráða hjá lækni eða sjúkraþjálfara, eða senda okkur tölvupóst á netfangið stod@stod.is.
Almennt séð þola spelkur og hlífar rigningu þess lags slettuálag en síður að vera ofan í vatni, bæði vegna tæringar og notkunargildis. Þó er þessu mismunandi háttað milli vara og rétt að kynna sér notkunarleiðbeiningar hverju sinni eða senda okkur tölvupóst á netfangið stod@stod.is.
Almennt séð á að þrífa spelkur með varfærnum hætti. Þannig skal þrífa í höndum ef kostur er, með mildu þvottaefni, með franska rennilása lokaða. Liði skal svo smyrja eftir þvott. Sumar spelkur má þó þvo í þvottavél. Í hverju tilfelli fyrir sig er því best að kynna sér þvottaleiðbeiningar í meðfylgjandi bæklingi hverju sinni eða eða senda okkur tölvupóst á netfangið stod@stod.is.
Já, ef hlífin þín þarfnast viðgerðar geturðu komið með hana til okkar. Óþarft er að panta tíma, þú getur komið með hana í verslunina til okkar og skilið eftir hjá starfsmanni í móttöku. Gættu að því að útskýra nákvæmlega fyrir þeim sem tekur við henni hvað þurfi að gera, svo allt sé á hreinu.
Hringdu á undan þér í s. 565-2885. Við reynum að koma ykkur að sem allra fyrst. Það kemur fyrir að það náist ekki samdægurs, en það á ekki að koma á sök.
Hjálpartæki
Hjálpartæki er tæki sem aðstoðar fólk við athafnir daglegs lífs. Þetta getur verið allt frá rafmagnshjólastól, sjúkrarúmi, barnakerru og göngugrind yfir í hækjur, bað og salernishjálpartæki og ýmiskonar smáhjálpartæki.
Þú ert velkomin/n í verslun okkar að Draghálsi 14-16 án tímabókunar. Þar erum við með sýningarsal þar sem stór hluti hjálpartækjaúrvals okkar er til sýnis. Ef þú þarft að máta hjólastóla eða vilt sérfræðiaðstoð við val á hjálpartæki mælum við með að þú bókir tíma í hjálpartækjaráðgjöf á https://bokanir.stod.is eða hringir á undan þér til að vera viss um að það sé einhver við sem getur veitt þér sem besta ráðgjöf og þjónustu.
Þú ert velkomin/n til okkar í verslunina, en gættu að því að við eigum ekki alltaf allar vörur til. Stundum þurfum við að panta af lager eða hjá birgja erlendis. Best er að senda okkur tölvupóst í netfangið stod@stod.is eða hringja í síma 565-2885 til að athuga hvort varan sé til áður en þú kemur. Gættu líka að því að það getur tekið allt að sólarhring fyrir samþykktina frá Sjúkratryggingum að berast til Stoðar eftir að þú færð tilkynningu um samþykkt. Ef samþykktin er ekki komin til okkar megum við því miður ekki afhenda vöruna nema rukka fullt verð. Það gildir líka þegar um endurnýjun heimildar er að ræða.
Það getur stundum tekið langan tíma að fá hjálpartæki afhent, þar sem oft þarf að sérpanta vörur að utan. Við höfum fullan skilning á að þetta geti verið erfið bið og við látum þig vita um leið og pöntunin þín er tilbúin til afhendingar. Ef þú vilt athuga með stöðu á pöntun er best að gera það í gegnum tölvupóst. Sendu línu á þinn tengilið hjá Stoð, eða á netfangið stod@stod.is og láttu kennitöluna þína fylgja. Við svörum þér um leið og við getum.
Ef þú vilt leggja sjálf/ur út fyrir hjálpartæki áður en niðurstaða um samþykkt á niðurgreiðslu liggur fyrir, er það hægt. En gættu að því að það er á þína eigin ábyrgð. Sjúkratryggingar vilja heldur að samþykkt liggi fyrir áður en varan er afhent og einnig getur verið að Sjúkratryggingar samþykki ekki niðurgreiðslu yfirhöfuð. Ef Sjúkratryggingar samþykkja beiðnina, þarftu sjálf/ur að senda þeim kvittunina fyrir kaupum á tækinu og sækja endurgreiðslu til þeirra.
Við erum með hjálpartækjaverkstæði í húsnæði okkar að Draghálsi. Þú getur bókað tíma í viðgerð á göngugrind eða hjólastól á https://bokanir.stod.is. Fyrir tímabókanir fyrir annars konar hjálpartæki eða almennar fyrirspurnir varðandi viðgerðir, virkni tækis eða aukahluti sendu tölvupóst á vidgerdir@stod.is. Ef um neyðartilfelli eða öryggisatriði er að ræða, hringdu í okkur í síma 565-2885 og við reynum við að koma þér að sem allra fyrst. Frekari upplýsingar um viðgerðir hjálpartækja má finna hér
Stoð tekur ekki við notuðum hjálpartækjum. Ef Sjúkratryggingar Íslands tóku þátt í kostnaði við tækið, að hluta eða heild, þarf að skila tækinu til þeirra á Vínlandsleið 16, 113 Reykjavík, að notkun lokinni.
Við erum bara með hjálpartæki til sölu, ekki til leigu.
Kæfisvefn
Við erum með ferðakæfisvefnsvél sem heitir AirMini frá ResMed. Hún er frá sama merki og vélarnar sem Landspítalinn er með (S9, S10 og S11), en munurinn er sá að ferðavélin er mun minni (300g að þyngd og 13,6 cm á lengd) og notar rakasíur í stað vatns. Frekari upplýsingar um ferðavélina má finna
Við kaup á ferðakæfisvefnsvél hittirðu sérfræðing sem stillir ferðavélina eftir hinni kæfisvefnsvélinni þinni, þannig að ferðavélin sé stillt nákvæmlega samkvæmt þinni greiningu. Í tímanum er þér einnig kennt á vélina og smáforritið sem fylgir henni og veitt ráðgjöf varðandi kaup á aukahlutum.
Þú getur bókað tíma á https://bokanir.stod.is eða hringt í síma 565-2885
Stoð er söluaðili og hefur ekki heimild til að hefja meðferð fyrir þig. Við mælum eindregið með því að fá greiningu og meðferð hjá fagaðilum. Ef þú kaupir ferðavél hjá okkur án þess að hún sé stillt eftir annarri vél er ekki hægt að tryggja bestu mögulegu virkni fyrir þig persónulega. Í slíkum tilfellum getum við selt þér vélina á verksmiðjustillingu og er meðferðin því ekki sett upp fyrir einstaklinginn út frá niðurstöðu greiningar. Við bjóðum hinsvegar uppá endurkomu til þess að stilla ferðavélina eftir stillingum kæfisvefnsvélar frá spítalanum.
Nei, þær gera það ekki.
Við mælum með að halda vélinni frá spítalanum og hafa ferðavélina sem auka vél. Inn í verðinu sem fylgir spítalanum er eftirfylgni og hægt að fá aukahluti og grímur án þess að greiða fyrir. Hjá okkur þarf að kaupa alla aukahluti og grímur. Hjá spítalanum eru fagaðilar í svefnrannsóknum en við erum aðeins söluaðilar.
Já, við erum með ýmsa aukahluti í kæfisvefnsvélarnar frá ResMed, bæði AirMini og S9/S10/S11. Við eigum til grímur, síur, hökubönd, barka, og hleðslubatterí, meðal annars. Við eigum þó ekki til smærri aukahluti eins og t.d. millistykki í grímur.
HumidX rakasíurnar henta fyrir flestar gerðir loftslags, á meðan HumidX Plus henta fyrir mjög þurrt loftslag. Sumum finnst gott að nota HumidX í heitu löndunum og HumidX Plus á Íslandi, en það er persónubundið hvað fólki finnst þægilegast. Fyrir andlitsgrímuna F20 er aðeins ein gerð sem er HumidX F20 og smellist inn í grímuna.
Það er mjög persónubundið hvaða gríma fólki finnst þægilegust. Ef þú ert með innilokunarkennd hentar minni gríma líklega betur, en ef þú ert með skegg getur verið að stærri grímu þurfi til að hún innsiglist. Ef þú átt N20 eða F20 grímu geturðu notað hana áfram með ferðavélinni. Það þarf þó alltaf að kaupa sérstakan barka fyrir ferðavélina.
Það er mjög sjaldgæft að vélarnar bili, ef vel er farið með þær eins og önnur raftæki. En ef það gerist skaltu hafa samband við okkur og við leysum málið með þér. Tveggja ára ábyrgð er á vélinni.