Fara á efnissvæði

Val á skóm fyrir börn

Fætur barna vaxa mjög hratt fyrstu árin og skiptir því höfuðmáli að velja fótabúnaðinn vel.
Tamas Pap Plpbpi6ib4 Unsplash

Fótabúnaður fyrir börn

Það skiptir höfuðmáli að kaupa ekki of litla skó. Fætur barna vaxa mjög hratt fyrstu árin og þess vegna ætti alltaf að gera ráð fyrir allt að 1-1 1/2 cm fyrir framan lengstu tána.  Við ástig þenst fóturinn alltaf eitthvað út (u.þ.b.1/2 cm). Gott húsráð er að velja ekki skó sem er hægt að vinda eins og tusku.

Vöxtur á fótum barna frá 1 til 2 ára er um 2cm á ári, 2 til 3 ára hægist örlítið á vextinum í 1 1/2 cm og frá 3 til 11 ára vex fóturinn um 1 cm.

Með þetta að leiðarljósi þá ættu skór sem þið kaupið á börnin að vera:

  • með a.m.k. 1 cm fyrir framan lengstu tána
  • með sóla sem er millistífur
  • með stífum hælkappa

Gætið ykkur á að hafa börnin ekki:

  • í of þröngum sokkum
  • í þungum skóm
  • í of stuttum barnafötum með áföstum sokk
  • í of litlum skóm 
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu