Fara á efnissvæði

Stöðugleikaþjálfun fyrir ökkla

Hér eru æfingar sem leggja áherslu á stöðugleika og jafnvægi
Shashi Chaturvedula Eyklrwnbxsm Unsplash

Þjálfunaræfingar

Í eftirfarandi æfingum þarf að leggja áherslu á stöðugleika og jafnvægi. Byrja skal á æfingum í fyrsta þrepi efst á listanum og fara ekki í næsta þrep fyrr en góðum stöðugleika er náð í æfingum á fyrsta þrepi. Í þessum æfingum er mikilvægt að hreyfingar ökkla séu beygja og rétta.  Hliðarhreyfingar eru óæskilegar og vinna gegn því að auka stöðugleika í ökklalið.

Þrep I 

  1. Staðið er á öðrum fæti á gólfi, jafnvægi haldið 
  2. Staðið er á öðrum fæti á gólfi, hnébeygjur 
  3. Staðið er á öðrum fæti á gólfi, farið upp á tær og hæla til skiptis

Þrep II (Framkvæmt á veltibretti eða öðru slíku) 

  1. Staðið á öðrum fæti, haldið jafnvægi 
  2. Staðið á öðrum fæti, kreppa/rétta ökkla 
  3. Staðið á öðrum fæti, hnébeygjur 
  4. Staðið á öðrum fæti, farið uppí jafnvægi lágri stöðu 
  5. Staðið á öðrum fæti, hinn fóturinn færður fram og aftur, út og að

Þrep III (Framkvæmt á veltibretti eða öðru slíku) 

  1. Staðið á öðrum fæti, bolta snúið í kringum sig 
  2. Staðið á öðrum fæti, bolta snúið í kringum þann fót sem staðið er á 
  3. Staðið á öðrum fæti, rekja bolta með hægri/vinstri hendi 
  4. Staðið á öðrum fæti, kasta/grípa bolta með ýmsum afbrigðum t.d. klappa einu sinni o.s.frv.

Þrep IV 

  1. Staðið á öðrum fæti á gólfi, með lokuð augun 
  2. Staðið á öðrum fæti á gólfi, með lokuð augun, hnébeygjur 
  3. Staðið á öðrum fæti á gólfi, með lokuð augun, farið uppá tær og hæla 

Þrep V (Framkvæmt á veltibretti eða öðru slíku) 

  1. Staðið á öðrum fæti, með lokuð augun 
  2. Staðið á öðrum fæti, með lokuð augun, hnébeygja 
  3. Staðið á öðrum fæti á gólfi, með lokuð augun, farið uppá tær og hæla
0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu