Stoð og MEDOR sameinast undir nafninu STOÐ
STOÐ hefur sameinast systurfélagi sínu MEDOR undir nafninu STOÐ. Sameiningin tók gildi í mars 2026 og er starfsemi sameinaðs félags rekin frá höfuðstöðvum að Draghálsi 14–16 í Reykjavík, þar sem Stoð hefur verið til húsa. Stoð er rótgróið þjónustufyrirtæki á heilbrigðissviði, stofnað 1982, með áherslur á heildarlausnir fyrir einstaklinga og stofnanir. MEDOR var stofnað 2011 til að mæta vaxandi þörf fyrir sérhæfingu í sölu og þjónustu á hágæða lækningatækjum, hjúkrunar- og rannsóknarvörum. Félögin eru hluti af Veritas samstæðunni.
Sigtryggur Hilmarsson, sem áður var framkvæmdastjóri MEDOR, tók við sem framkvæmdastjóri sameinaðs félags STOÐAR 1. mars. Sigtryggur er með MBA gráðu frá Erasmus University, Rotterdam School of Management og Cand. Pharm gráðu í lyfjafræði frá Háskóla Íslands.
Með sameiningunni styrkist starfsemi félagsins enn frekar með aukinni samþættingu og bættri þjónustu. Viðskiptavinum stendur nú til boða fjölbreyttara vöru- og þjónustuframboð og heildstæðar lausnir á einum stað á sviði heilbrigðis- og rannsóknarþjónustu.
„Sameining MEDOR og Stoðar er mikilvægt skref sem gerir okkur kleift að veita viðskiptavinum betra aðgengi að þekkingu, sérhæfingu og lausnum á einum stað. Við höldum áfram að byggja á þeirri fagmennsku og áreiðanleika sem bæði félög hafa staðið fyrir, um leið og við styrkjum þjónustuna enn frekar,“ segir Sigtryggur Hilmarsson, framkvæmdastjóri STOÐAR.
Áfram verður lögð áhersla á faglega ráðgjöf, sölu og þjónustu á hágæða rannsóknar- og hjúkrunarvörum, auk lækninga-, hjálpar- og stoðtækja.
Tæknideild MEDOR starfar áfram með óbreyttu sniði að Miðhrauni 4 og Distica mun áfram annast sölu og dreifingu á vörum félagsins fyrir heilbrigðisstofnanir, fyrirtæki og rannsóknarstofur, líkt og verið hefur.