Fara á efnissvæði

Ráðgjöf til einstaklinga og öldrunarheimila

Sandra Karen Bjarnadóttir, hjúkrunarfræðingur veitir ráðgjöf og fræðslu um rétta notkun þrýstingssokka til einstaklinga og öldrunarheimila.
Sandra Karen

Þrýstingssokkar - ráðgjöf til einstaklinga og öldrunarheimila

Stoð hefur ráðið Söndru Karen Bjarnadóttur, hjúkrunarfræðing, til að efla sérhæfða þjónustu við öldrunar- og hjúkrunarheimili, með sérstaka áherslu á þrýstingssokka. Sandra býr yfir víðtækri reynslu úr heilbrigðiskerfinu, meðal annars frá geðsviði og barnadeild Landspítala ásamt störfum á hjúkrunarheimilum Hrafnistu. 

„Mannlegu samskiptin og það að finna lausnir sem virka er það sem heillar mig mest,“ segir Sandra. Hún bendir á að bólgur og bjúgur séu algeng vandamál sem oft megi bæta verulega með réttri notkun þrýstingssokka. „Það er afar gefandi að sjá árangur í bættri líðan fólks og finna jafnframt hversu þakklátt starfsfólk heilbrigðisstofnana er fyrir fræðslu og ráðgjöf um þrýstingsmeðferðir.“ 

Með ráðningu Söndru styrkir Stoð stoðtækjaþjónustu sína enn frekar með það að markmiði að bæta líðan og lífsgæði einstaklinga. Jafnframt er lögð aukin áhersla á fræðslu og ráðgjöf til  meðal annars starfsfólks öldrunar- og hjúkrunarheimila um vörur og lausnir sem stuðla að betri lífsgæðum íbúa. 

Hægt er að óska eftir heimsókn frá Söndru með því að senda tölvupóst á sandrakb@stod.is.

Við bjóðum Söndru hjartanlega velkomna til starfa og hlökkum til farsæls samstarfs.

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu