Þau Karen Þrastardóttir og Marteinn Kolbrúnarson munu standa vaktina í verslun og þjónustuveri Stoðar. Karen var að ljúka sínu fyrsta námsári í læknisfræði og Marteinn sínu fyrsta ári í sjúkraþjálfun.
María Vigdís Sanches- Brunete er að hefja annað sumarið sitt í hjálpartækjadeild Stoðar, hún er meistaranemi í sjúkraþjálfun við Háskóla Íslands. María mun ganga til liðs við ETAC teymið og sinna öðrum verkefnum í sumarleyfum starfsfólks.
Gefandi verkefni og gott samstarfsfólk er meðal þess sem þau nefna sem kosti þess að vinna hjá Stoð.