Fagfólk að störfum
Hér má sjá að störfum þær Katrínu Söru Reyes sérfræðing í göngugreiningu, Birgittu Hallgrímsdóttur íþróttafræðing, og Júlíönu Sveinsdóttur nema í stoðtækjafræðum. Þær hafa á undanförnum vikum starfað undir handleiðslu Ingu Dóru Magnúsdóttir, skósmíðameistara, og þeirra Þóris Jónssonar og Kjartans Gunnsteinssonar stoðtækjafræðinga, en öll búa þau að áratuga reynslu í faginu.