Fara á efnissvæði

AirMini ferðakæfisvefnsvélar njóta vaxandi vinsælda

Kæfisvefn er algengur kvilli sem mörgum hefur tekist að ná bótum á með notkun svefnöndunartækja. Hefðbundnar vélar eru fyrirferðamiklar en ferðakæfisvefnsvél er lítil og einföld í notkun.
Airmini

AirMini ferðakæfisvefnsvélar njóta vaxandi vinsælda

AirMini ferðakæfisvefnsvélar frá Resmed njóta sívaxandi vinsælda. Kæfisvefn er algengur kvilli sem mörgum hefur tekist að ná bótum á með notkun svefnöndunartækja, en notkun slíks tækis tryggir að öndunarvegurinn haldist opinn yfir nóttina og kemur þannig í veg fyrir öndunarhlé sem valdið geta súrefnisskorti og truflunum á svefni.

Hefðbundnar kæfisvefnsvélar eru þó fyrirferðamiklar og þeim fylgir vatnstankur sem fylla þarf á.  AirMini ferðakæfisvefnsvélin er hins vegar ekki mikið stærri en farsími og er búin kerfi sem veitir raka án þess að fylla þurfi vélina af vatni, þetta gerir hana afar þægilega til nota á ferðalögum.

Til þess að greina kæfisvefn þarf einstaklingur að undirgangast svefnrannsókn að undangenginni tilvísun frá lækni.  Hefðbundnar kæfisvefnsvélar eru alla jafna stilltar fyrir viðkomandi einstakling til að ná sem bestri nýtingu.  Ferðakæfisvefnsvélarnar búa yfir margvíslegum stillingum og starfsfólk Stoðar getur stillt ferðakæfisvefnsvél til samræmis við stillingu hefðbundinnar vélar.  Vélina er einnig hægt að nota á grunnstillingu, en ávallt er mælt með að hún sé stillt fyrir viðkomandi einstakling. 

Hægt er að kaupa grunn pakka með grímu og barka fyrir AirMini vélarnar.  Almennt passa barkar af hefðbundnum kæfisvefnsvélum ekki á AirMini, en í sumum tilvikum geta grímur passað.  Hægt er að fá fylgipakka sem passar bæði hefðbundnu og ferðavélarnar. Ennfremur er hægt að kaupa hleðslubanka fyrir vélina sem nýtist afar vel á ferðalögum.

Nánari upplýsingar um kæfisvefn má finna á vef Heilsuveru Kæfisvefn | Heilsuvera

0
Samtals 0 kr
Ganga frá körfu