Efemia Startset
Efemia þvaglekatappinn er vara frá sænska fyrirtækinu Invent Medic Sweden sem sérhæfir sig í heilsu- og vellíðunarvörum fyrir konur. Þvaglekatappanum er ætlað að draga tímabundið úr áreynsluþvagleka hjá konum eldri en 18 ára með því að styðja við þvagrásina gegnum leggangavegginn. Hvað er áreynsluþvagleki? Áreynsluþvagleki er skilgreindur sem ósjálfráður þvagleki við álag eða áreynslu, hnerra eða hósta. Vandinn er ekki skilgreindur eftir magni eða tíðni lekans. Þvagleki er félagslegt vandamál hjá mörgum, auk þess sem hann hefur áhreif á hreinlæti. Áreynsluþvagleki getur valdið ertingu, útbrotum og sýkingum á kynfærasvæði vegna endurtekinnar snertingar við þvag. Hvað er Efemia þvaglekatappi? Efemia þvaglekatappinn er margnota leggangatappi úr læknasílikoni. Honum er ætlað að draga tímabundið úr ósjálfráðum þvagleka við áreynslu. Hvernig er Efemia þvaglekatappinn notaður? Þvaglekatappanum er komið fyrir í leggöngunum og mikilvægt er að gæta að handþvotti með vatni og sápu áður en tappanum er komið fyrir. Einnig skal þvagblaðran vera tóm. Nánari upplýsingar um notkun og uppsetningu þvaglekatappans er að finna í notkunarleiðbeiningum. Hvernig er Efemia þvaglekatappinn þveginn? Þrjár leiðir eru til að þvo þvaglekatappann: Skolaðu tappann vandlega með hreinu vatni. Þetta hentar vel ef nota á tappann strax aftur. Láttu tappann sjóða í hreinu vatni í 10 mínútur og leggðu hann svo til þerris. Hreinsaðu með hreinu vatni og sápu, helst sápu ætlaðri til notkunar á kynfærasvæði. Gættu að því að þvo allan hlutinn. Skolaðu alla sápu vandlega af og leggðu til þerris. Hvernig veit ég hvaða stærð af Efemia þvaglekatappa skal nota? Í byrjunarsettinu eru allar þrjár stærðirnar (30, 35 og 40 mm) af Efemia þvaglekatappanum. Hver og einn notandi þarf að prófa sig áfram og finna hvaða stærð hentar og virkar. Í framhaldinu er svo hægt að kaupa þvaglekatappann stakann í þeirri stærð sem hentar. Hversu lengi má nota sama þvaglekatappann? Skipta skal þvaglekatappanum út eftir þriggja mánaða notkun. Nánari upplýsingar má nálgast á www.efemia.se og einnig má senda fyrirspurnir til okkar á netfangið hjukrun@stod.is.