Handhjól á hjólastóla
Einfalt í notkun og passar á nánast alla tegundir hjólastóla
Quad Hybrid hjólið er handknúið hjól með rafmagnsmótor til aðstoðar.
Hannað fyrir einstaklinga með skaða á bæði efri og neðri útlimum svo sem quadriplegu.
Í þessu hjóli sameinast hönnunin á Batec Quad handknúnu og Batec rafknúnu hjóli í einu og sama tækinu.
Hjólið er góð lausn sem samgöngumáti og til heilsueflingar
Stöðluð útfærsla hjólsins er útbúin:
- Quad handföngum sem veita betra grip
- Gírstöng sem auðvelt er að nota án þessa af taka hendur af pedölum
- Pedalabremsum, bremsar með því að snúa pedölum í öfugan hring
- Magic lever, þannig að notandi geti hjólað án mótsstöðu
Hagnýtar og tæknilegar upplýsingar:
- Þyngd tækis: 21,5 (+ 4kg rafhlaða, + 5 kg þyngsli sem fest eru á hjólið til að ná betra gripi)
- Lithium rafhlaða sem dregur 30-50 km á hleðslu við kjöraðstæður
- Hleðsla rafhlöðu tekur 4 klst
Við hönnunina á hjólinu var mikið hugsað um að hafa alla virkni handhjólsins einfalda og hagnýta. Það þekkja það allir að hlutir sem erfitt eða tímafrekt er að nota eiga það til að standa ónotaðir og rykfalla.
Þannig var fundin lausn sem gerir notendum kleift að festa handhjólið á og losa það af hjólastólnum á auðveldan hátt.
Því er einfalt að hjóla t.d á veitingahús, í heimsókn til vina, smella handhjólinu af og nota hjólastólinn innandyra.
Stutt myndband sem sýnir eiginleika og notkun hjólsins
Hægt er að skoða og prófa Hybrid og rafknúna hjólið í verslun Stoðar, við bendum á að panta tíma í síma: 565-2885
Mynd 1. Quad grip Mynd 2. Pedala bremsur