Hjálparmótor í dekkjum fyrir virka notendur
Athugið að um sérpöntunarvöru er að ræða
Hentar flestum léttum hjólastólum
Mótor og rafhlaða er í báðum dekkjum.
Nemar á drifhringjum keyra mótorana af stað þegar stólinn er keyrður áfram.
Litlar og léttar festingar til að þyngja stól ekki of mikið, auðveldar notanda að flytja dekk inn og úr bíl
Þyngd: Hvort dekk vegur 6 kg
Drægni: 12- 20 km
Hraði: 6 km á klst, hægt að fara i 10 km/klst með mobility plus
Hámarksþyngd notanda: 120 kg
Hámarksburðargeta: 145 kg
Myndband frá framleiðanda um hjálparmótorinn
Flughæfniskírteini og gagnlegar upplýsingar fyrir flug
Rafhlaða:
- Lithium rafhlaða
- Tekur 4,5 klst að hlaða ef rafhlaða er alveg tóm
- Bæklingur með upplýsingum um meðhöndlun Lithium rafhlöðu
Hleðslutæki:
Hleður báðar rafhlöður í einu
- Lítið og létt og því auðvelt fyrir notenda að ferðast með það, þyngd 450 g
- Hleðslutækið er með segli þannig að það smellur auðveldlega á réttan stað
- Til að hlaða rafhlöðu er hleðslutæki smellt við rofa sem kveikir og slekkur á hjálparmótor
Appið:
Hægt er að sækja app fyrir Twion frítt á Playstore eða í Istore
Í appinu eru góðar og gagnlegar upplýsingar um hjálparmótorinn:
- Hvernig á að kveikja og slökkva
- Hvernig á að taka dekkin af
- Hvernig á að hlaða
- Tékklisti áður en farið er í flug
- Kóði vegna villumeldingar, hvað veldur villunni og hvernig á að laga það
- Listi yfir umboðsaðila um allan heim
Mobility Plus: (ekki í samning við SÍ)
Hægt er að kaupa Mobility Plus pakka sem tengir þá dekkin við síman með bluetooth
Þá er hægt að:
- Sjá ýmsar upplýsingar í símanum eins og stöðu á rafhlöðu, hraða og vegalend sem er búið að keyra.
- Breyta stillingum og velja aksturform, Eco Mode, Sport Mode eða Auto Mode
- Setja á Cruise mode, stóllinn keyrir sjálfur þar til notandi stoppar hann. Beygir með því að grípa létt í annað dekkið og hægja á því. Svo keyrir hann beint aftur þegar dekki er sleppt. Myndband á þýsku með enskum texta sem sýnir hvernig Cruise Mode virkar
- Tour Mode, gefur notanda kost á að sjá farna leið út frá GPS í símanum
- Silent Mode, slekkur á ljósi og pípi
- Hægt að keyra stólinn þegar enginn situr í honum og setja í svokallaða standby stöðu.
Mynd af Tour mode