Rafknúinn hjólastóll fyrir börn
Skippi er nettur barnastóll fyrir börn á aldrinum 2-12 ára.
Fjölbreyttir stillimöguleikar og hægt er að aðlaga stólinn eftir því sem barnið vex.
Fáanlegur með rafdrifinni sætishækkun, sætishalla og bakhalla. Armar eru hæðarstillanlegir og hægt er að fá borð með stjórnborði í miðlínu.
Helstu aukahlutir eru aðstoðarmannastýring og ýmsar lausnir á stýripinna til að auðvelda barninu að stýra stólnum.
Litir: hvítur, bleikur, grár, grænn og svartur.
Hámarksþyngd notanda: 50 kg.
Setbreidd: 24-36 cm
Setdýpt: 29-37 cm
Pöntunareyðublað - smella til að opna
Vörubæklingur - smella til að opna