Verklag í Stoð vegna COVID -19
Verklag í Stoð til að draga úr smithættu nú á meðan smitum fjölgar í samfélaginu
Starfsfólk Stoðar mun sem fyrr gæta fyllstu varkárni í samskiptum sínum við viðskiptavini og fylgja ráðleggingum Landlæknisembættisins um öflugar sóttvarnir.
- Við viljum biðja viðskiptavini sem koma í göngugreiningu, mælingar og til að fá aðra þjónustu sem krefst nálægðar að koma með grímu með sér.
- Einnig minnum við á mikilvægi handþvotts og sprittunar, en viðskiptavinum er boðið gott aðgengi að handspritti.
- Að lokum biðjum við ykkur að virða tveggja metra regluna og afbóka tíma ef þið finnið fyrir flensulíkum einkennum
Hjálpumst að og sýnum tillitssemi
Við erum jú öll almannavarnir :)