Bylting í augnstýringu rafmagnshjólastóla

HomeBrace kynnti á dögunum byltingarkenndar nýjungar í augn- og höfuðstýringu fyrir Permobil rafmagnshjólastóla.
Tæknin, sem er mun nákvæmari en sú sem áður hefur þekkst, gerir fólki ekki einungis kleift að stýra akstri stólsins, heldur einnig að hafa stjórn aðlögun sætis og annars búnaðar stólsins. Í gengum stafræn gleraugu getur notandinn forritað margvíslegar aðgerðir með augnhreyfingum og aukið þannig sjálfstæði sitt til muna.
Kynningin hjá Stoð var vel sótt, bæði af þeim sem starfa með einstaklingum sem hafa misst eiginleika til stjórnar á útlimum, meðal annars frá MS setrinu, MND á Íslandi, Endurhæfingu, sem og einstaklingum sem nýtt geta búnaðinn.
Mikill áhugi er fyrir þessari byltingakenndu nýjung frá HomeBrace sem leggur í sinni nýsköpun aðaláherslu á að veita fólki aukið sjálfstæði og aukna stjórn á umhverfi sínu.