Þegar sótt er um hjálpartæki
Við kaup á hjálpartæki þarf alltaf að liggja fyrir heimild frá Sjúkratryggingum Íslands ef krafist er þátttöku almannatrygginga. Sækja verður um hjálpartæki áður en fest eru kaup á þeim. Læknar, iðjuþjálfar eða sjúkraþjálfarar meta þörf fyrir hjálpartæki. Lýsing á færni og rökstuðningur þarf alltaf að fylgja umsókn.
Vinsamlegast athugið eftirfarandi:
- Framvísa verður frumriti af samþykkt SÍ við afgreiðslu hjálpartækja frá hjálpartækjaseljendum.
-
Framvísa skal innkaupaheimild og skilríkjum við afgreiðslu einnota hjálpartækja s.s. sykursýkisvara og stómavara.
-
Við innheimtu skal frumrit af samþykkt SÍ fylgja reikningi. Einnig verður kvittun móttakanda (fullt nafn) að vera til staðar eða kvittun frá pósthúsi/flutningsfyrirtæki
HTM (Hjálpartækjamiðstöð) miðar við að afgreiða samþykktir út eins fljótt og auðið er; hámarkstími er 5 vikur. Afgreiðslufrestur söluaðila er 3-8 vikur. Söluaðilar hjálpartækja annast viðgerðir á ábyrgðartíma en eftir það sér HTM alfarið um slíkt. Þegar hjálpartæki hefur verið samþykkt skal leysa það út innan árs. Upplýsingar um umsóknir veita iðjuþjálfarar Hjálpartækjamiðstöðvar SÍ í síma 515-0100.
www.sjukra.is/lyf-og-hjalpartaeki/um-hjalpartaeki/
Varðandi flutning á hjálpartækjum gilda eftirfarandi reglur
-
Hjálpartæki sem komast í fólksbíl skal notandi annast flutning á sjálfur
-
Stærri tæki s.s. rafknúnir hjólastólar og rúm eru sótt/send af HTM
-
Þurfi að senda hjálpartæki út á land greiðir SÍ flutningskostnað
-
Stofnanir og sérstök heimili(dvalarheimili, hjúkrunarheimili, sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir, sambýli og vistheimili)sækja og senda öll hjálpartæki